21 maí 2009Sjötti og síðasti leikur dagsins hjá íslensku liðunum var viðureign Íslands og Finnlands í U-16 drengja. Íslensku strákarnir unnu góðan sigur í fyrsta leik en nú mættu þeir sterku finnsku liði. Eftir hörkuleik höfðu þeir finnsku betur 78-65. ísland leiddi stóran hluta af leiknum og í hálfleik var staðan 35-36 fyrir Ísland og eftir þrjá leikkhluta leiddi Ísland með tveim stigum og allt stefndi í spennandi og jafnan leik. En í fjórða leikhluta gekk fátt upp hjá Íslandi og að lokum höfðu þeir finnsku sigur 78-65. Stigahæstur hjá Íslandi voru Kristófer Acox og Valur Valsson með 13 stig hvor. Stig: Kristófer Acox 13 stig Valur Orri Valsson 13 stig Matthías Sigurðarson 11 stig Oddur Birnir Pétursson 9 stig Andri Þór Skúlason 7 stig Þorsteinn Ragnarsson 5 stig Andri Daníelsson 5 stig Maciej Baginski 2 stig Þeir Emil Einarsson, Ágúst Orrason og Snorri Hrafnkelsson spiluðu en náðu ekki að skora.