20 maí 2009Fyrstu tveir leikir Íslands á Norðurlandamóti yngri landsliða eru búin. Strákarnir í U-18 unnu sína andstæðinga en þeir mættu Dönum. Lokatölur 69-60. Stigahæstir hjá Íslandi voru Ægir Steinarsson með 17 stig, Haukur Pálsson með 16 stig og Arnþór Guðmundsson skoraði 13. Stelpurnar í U-18 áttu erfitt kvöld en þær töpuðu fyrir Finnlandi 88-39. Stigahæst hjá Íslandi var Björg Einarsdóttir með 8 stig og þær Dagmar Traustadóttir og Salbjörg Svavarsdóttir voru með 7 stig hvor. Nánar verður greint frá leikjunum seinna ...