19 maí 2009Í þessum töluðu orðum eru U18 liðin okkar á leið í flug til Svíþjóðar á NM 2009. Bæði lið hefja leik á morgun miðvikudag og verður spennandi að sjá hvernig okkur vegnar í ár. U16 liðin fljúga svo í fyrramálið og hefja leik á fimmtudaginn. Ægir Þór, leikmaður Fjölnis og U18 liðs karla, setti tóninn fyrir komandi víkingaför í myndatökunni um daginn eins og sjá má á meðfylgjandi mynd og greinilegt að hann mun ekki taka létt á nágrönnum okkar á mótinu. Við óskum okkar liðum góðs gengis og flytjum fréttir um leið og þær berast. Áfram Ísland!