14 maí 2009Á þinginu um helgina verður kosið í nýja stjórn KKÍ til næstu tveggja ára, en Körfuknattleiksþingið er núna á tveggja ára fresti. Frambjóðendur til stjórnarsetu 2009-2011: Framboð til formanns KKÍ Hannes Sigurbjörn Jónsson Framboð í aðalstjórn Erlingur Hannesson Eyjólfur Þór Guðlaugsson Guðbjörg Norðfjörð Guðjón Þorsteinsson Páll Kolbeinsson Þorsteinn Þorbergsson Þóra Melsted Kosið verður um sex laus sæti í aðalstjórn og þar sem það eru sjö í framboði þá getur sá sem verður neðstur/neðst boðið sig fram í varastjórn. Framboð í varastjórn Bryndís Gunnlaugsdóttir Guðjón Guðmundsson Lárus Ingi Friðfinnson Kosið er um þrjú laus sæti í varastjórn og eru þrír í framboði, möguleiki er á því að einnig verður kosið þar því sá/sú sem verður neðstur/neðst í aðalstjórn getur boðið sig fram í varastjórn.