29 apr. 2009Á þriðjudaginn eftir viku, þann 5. maí, rennur út frestur til framboðs í stjórn KKÍ fyrir næstu tvö ár. Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram til stjórnarsetu eru því vinsamlegast beðnir um að senda inn tilkynningu um framboð sitt á [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-]. Úr lögum KKÍ um framboð til stjórnar. 9. grein Stjórn KKÍ fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórn KKÍ skipa sjö menn. Formaður skal kosinn til tveggja ára í senn. Á hverju þingi skal kjósa sex stjórnarmenn til tveggja ára. Kjósa skal þrjá varamenn til tveggja ára í senn og taka þeir sæti í stjórninni í þeirri röð sem þeir eru kjörnir. ... Þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn KKÍ eða varastjórn skulu tilkynna það til stjórnar KKÍ ekki síðar en 10 dögum fyrir ársþing. Berist ekki framboð fyrir þann tíma skal stjórn KKÍ hlutast til um tilnefningu aðila til stjórnarkjörs á ársþingi.