28 apr. 2009Simmi og Jói eru að gera sig klára þessa dagana fyrir lokahófið en þeir hafa það vandasama verk að stýra dagskránni. Eins og þeir vita sem hlusta á þá félaga á laugardagsmorgnum á Bylgjunni þá hringja þeir í mömmu Simma og er óhætt að segja að sá dagskrárliður hafi slegið í gegn. Það er því ekki úr vegi að hita aðeins upp með upprifjun á ansi skemmtilegum símahrekki sem Simmi gerði móður sinni fyrir um 10 árum síðan. Símahrekkinn má finna [v+]http://www.youtube.com/watch?v=1PELPGhEgJU&feature=related[v-]hér[slod-] Þeir félagar verða í banastuði á laugardaginn.