26 apr. 2009Fyrsta úrslitaviðureign dagsins var milli Njarðvíkur og KR í 9. flokki drengja. Þessi lið komust í undanúrslit í gær þegar KR lagði Þór Þ. 67-42 og Njarðvík vann Grindavík 72-55. Njarðvík hafði betur [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0zOSZvX2xlYWc9OSZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01Nzk=[v-]79-62[slod-]. Sigur þeirra grænu var frekar öruggur en þeir leiddu 22-9 eftir 1. leikhluta og 48-27 í hálfleik. Birgir Snorrason var valinn besti maður leiksins en hann skoraði 21 stig og tók 5 fráköst fyrir Njarðvík. KKÍ óskar Njarðvík til hamingju.