26 apr. 2009Keflavík vann Snæfell [v+]http://lb1.mbt.lt/prod/kki/netcasting/index.php?game_number=581µsite_scope=undefined[v-]41-56[slod-]. í úrslitaleik Stúlknaflokks. Staðan í hálfleik var 20-32 fyrir Keflavík. María Ben Jónsdóttir var valinn besti maður leiksins en hún skoraði 15 stig, tók 8 fráköst og varði 6 skot fyrir Keflavík. Jafnræði var með liðunum í leiknum til að byrja með. Í stöðunni 17-19 skoruðu Keflvíkingar 10 stig gegn 1 og eftir það reyndist Snæfellingum erfitt að jafna leikinn. Lokatölur 41-56. KKÍ óskar Keflavík til hamingju.