26 apr. 2009Lið Grindavíkur varð Íslandsmeistari í 9. flokki kvenna í dag þegar þær lögðu Keflavík [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz00MCZvX2xlYWc9MTAmZnVzZWFjdGlvbj1nYW1lcy5tYWluJmdfaWQ9NTgw[v-]53-49[slod-] eftir framlengdan leik. Leikurinn var í járnum frá upphafi til enda. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma 45-45 og þurfti því að grípa til framlengingar. Í henni reyndust þær gulu sterkari og höfðu sigur. Jeanne Lois Figeroa Sicat úr liði Grindavíkur var valin besti maður leiksins með 13 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar. KKÍ óskar Grindavík til hamingju.