24 apr. 2009Mánudaginn 27. apríl nk fer fram þjálfaranámskeið á vegum unglingaráðs körfuknattleiksdeildar UMFG. Skráningarfresti er lokið og það hafa yfir 50 skráð sig. Námskeiðið er gjaldfrítt en skráningin var einungis til þess að vita hversu margir munu verða í mat í hléinu á Salthúsinu. Þeir sem hafa ekki skráð sig er velkomið að mæta, en gætu þurft að sjá um sína næringu sjálfir. Námskeiðið er í ÍÞRÓTTAHÚSINU Í GRINDAVÍK og hefst kl. 17:00. Fyrirlesarar eru Einar Árni Jóhannsson, Ingi Þór Steinþórsson, Margrét Sturlaugsdóttir og Tómas Holton.