24 apr. 2009Í kvöld hófst seinni úrslitahelgi yngriflokka með undanúrslitum unglingaflokks karla. Keflavík og Fjölnir mættust annarsvegar og hinsvegar Haukar og FSu. Leikum lyktaði þannig að Keflavík sigraði Fjölni 78:72 og FSu lagði Hauka 112:71. Það verða því Keflavík og FSu sem leika til úrslita á sunnudaginn kemur í DHL-höllinni. Fyrir þá sem ekki komast má benda á að allir úrslitaleikirnir verða í beinni á KR-TV á sunnudaginn.