22 apr. 2009Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands-KKÍ hefur gengið frá ráðningu Hennnings Henningssonar sem þjálfara A-landsliðs kvenna. Henning hefur mikla reynslu sem leikmaður og þjálfari. Henning hefur þjálfað í efstu deildum karla og kvenna og einnig var Henning þjálfari unglingalandsliðs kvenna fyrir nokkrum árum. Næsta verkefni kvennalandsliðsins verða Smáþjóðaleikarnir á Kýpur sem fara fram í byrjun júní n.k. og mun liðið hefja æfingar fljótlega. Í ágúst mun liðið leika seinni umferðina í Evrópukeppninni. Ráðning Hennings er fram yfir Evrópukeppnina í haust.