21 apr. 2009Nú er miðasala fyrir lokahófið þann 2. maí hafin hjá Brodway. Hægt er að kaupa miða á netinu [v+]http://www.teiti.is/kki/midar_kki_09.html [v-]hérna[slod-] með því að fylla út formið á síðunni. Fyrir þá sem vilja er einnig hægt að kaupa miða á Broadway. Hægt verður að kaupa miða á ballið eftir mat og verðlaunaafhendingu en þá er miðaverð 2.000 kr. Hægt er að kaupa miða [v+]http://www.teiti.is/kki/midar_kki_09_ball.html [v-]hérna[slod-]. Gisting · Sérkjör fyrir gesti á lokahófinu Broadway býður upp á sérstakt verð fyrir gesti á lokahófi KKÍ sem vilja gista á hótelinu. Hægt er að velja milli fjögurra gerða af herbergjum. · Standard eins manns herbergi kr. 6.500 nóttin. · Standard tveggja manna herbergi kr. 8.750 nóttin. · Superior tveggja manna herbergi kr. 11.000 nóttin. · Junior svítur tveggja manna herbergi kr. 14.000 nóttin. Nánari upplýsingar um gistingu og bókanir eru í síma 525-9920 milli kl. 8 og 18 alla virka daga. Dagskráin Verðlaunaafhending Körfuknattleikssamband Íslands þar sem bestu leikmenn Iceland Express deildanna og 1. deildar karla verða verðlaunaðir. Skemmtiatriði Veislustjórar: Simmi og Jói Hljómsveit: Land og synir spila fyrir dansi að borðhaldi loknu. Hátíðarmatseðill: Sjávarréttasúpa sælkerans Andabringa Orange með appelsínusósu Karamellubomba með vanillu og berjasósu Húsið opnar 19:30 - Borðhald hefst 20:15