19 apr. 2009Fjölnir vann KR í úrslitum drengjaflokks í dag [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0zNCZvX2xlYWc9NCZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01NzA=[v-]88-48[slod-]. Leikurinn varð aldrei spennandi því sigur Grafarvogsbúa var frá upphafi mjög öruggur. Ægir Þór Steinarsson stóð upp úr góðu Fjölnisliði og var valinn besti maður leiksins en hann skoraði 16 stig, gaf 10 stoðsendingar og tók 10 fráköst og var því með þrefalda tvennu. KKÍ óskar Fjölni til hamingju.