18 apr. 2009Í dag fóru fram 4 leikir í úrslitum yngriflokka. Keflavík átti tvö lið í 10. flokk kvenna og unnu þeir báðir sína undanúrslitaleiki. Það verða því Keflavík-a og Keflavík-b sem mætast í úrslitum á morgun. Í unglingaflokki kvenna mætast KR og Grindavík og í drengjaflokki Fjölnir og KR. Í 10. flokk drengja mætast KR og Breiðablik. KR sigraði Keflavík 54:49 og Breiðablik lagði Njarðvík 56:54.