18 apr. 2009Í dag fara fram úrslitaleikir 2.deildar karla í ár. Deildin hefur verið tvískipt, B-lið leika saman í deild, en önnur lið sem tefla fram sínum meistaraflokkum leika saman í deild. Búið erð að leika til 8-liða úrslita í báðum deildum og í dag er komið að úrslitaleikjunum. Það eru Fjölnir-b og Grindavík-b sem mætast í fyrri úrslitaleik dagsins í ár kl 12.00. Strax að honum loknum, eða kl 14.00 mætast svo ÍG og ÍA í úrslitaleik 2.deildar karla. Bæði lið hafa tryggt sér sæti í 1.deild að ári en leikið er um sigur í deildinni. Báðir leikir fara fram í Hagaskóla og hefjast þeir eins og áður segir kl. 12.00 og kl. 14.00.