18 apr. 2009Úrslit yngri flokka hófust í kvöld þegar undanúrslit drengjaflokks fóru fram. Fyrsti leikur dagsins var viðureign Fjölnis og Njarðvíkur og höfðu drengirnir úr Grafarvogi betur [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0zNCZvX2xlYWc9NCZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01Njg=[v-]92-51[slod-]. Hinn leikur dagsins var einnig í drengjaflokki en þá unnu KR-ingar Breiðablik [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0zNCZvX2xlYWc9NCZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01Njk=[v-]99-63[slod-]. Það verða því lið KR og Fjölnis sem mætast í úrslitaleik drengjaflokks á sunnudag. Leikurinn hefst kl. 16:00. Úrslitin halda áfram í fyrramálið en þá er komið að stelpunum í 10. flokki kvenna og er fyrsti leikur dagsins kl. 10:00 þegar Keflavík-b mætir Haukum.