17 apr. 2009Körfuknattleikssamband Íslands hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu: Fréttatilkynning 17.apríl 2009 Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands hefur í dag ákveðið að segja upp samningi við Ágúst Sigurð Björgvinsson þjálfara A-landsliðs kvenna og lætur hann strax af störfum. Unnið er að því að ráða nýjan þjálfara til liðsins. Ástæða uppsagnarinnar er trúnaðarbrestur á milli stjórnar KKÍ og þjálfarans. F.h.stjórnar KKÍ, Hannes Sigurbjörn Jónsson formaður KKÍ