16 apr. 2009Úrslitaleikur 2. deildar karla verður laugardaginn 18. apríl kl. 14.00 í Hagaskóla. ÍA og ÍG mætast í úrslitaleiknum en þau hafa nú þegar tryggt sér sæti í 1. deild að ári. ÍA lagði Brokey 70-78 í undanúrslitum og ÍG hafði betur gegn Mostra 96-85.