16 apr. 2009Kynningarfundur verður haldin í Borgarholtsskóla mánudaginn 20. apríl kl. 19:30. Íþróttir fyrir Afreksfólk í Borgarholtsskóla - Haustið 2009. Borgarholtsskóli býður upp á afreksíþróttasvið í knattspyrnu, körfuknattleik, golfi og skíðum. Nemendur á afreksíþróttasviði geta stundað nám á hvaða bóknámsbraut skólans sem er (félagsfræði-, mála-, náttúrufræði- og viðskipta og hagfræðibraut). Afreksíþróttasvið er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða bóknámi. Fjórar námseiningar á önn. Kröfur til nemenda: • Að hafa stundað íþrótt sína í nokkur ár og vera virkur iðkandi í íþróttafélagi. • Að hafa staðist grunnskólapróf • Vera vímuefnalaus íþróttamaður/íþróttakona. • Geta tileinkað sér hugarfar og lífsstíl afreksíþrótta. • Standast eðlilega námsframvindu og ljúki u.þ.b. 15-19 einingum á önn. • Gerð er krafa að nemendur hafi a.m.k. 95% skólasókn í öllum námsgreinum. Efnisgjald fyrir afreksíþróttasvið verður innheimt sérstaklega til viðbótar við önnur skólagjöld. Frábær kennsluaðstaða: • Egilshöll – íþróttahús Fjölnis • Korpúlfsstaðir - Básar Umsókn: Nemendur sækja um bóknámsbraut rafrænt. Umsóknareyðublað fyrir AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ er á www.bhs.is (undir “bóknám til stúdentsprófs”) eða á skrifstofu skólans. Skil á umsóknum er 15. maí – 11. júní. Allar nánari upplýsingar veitir: Bjarni Jóhannsson Verkefnisstjóri afreksíþrótta BHS Sími 896-8566 bjarni@bhs.is