16 apr. 2009KR varð helgina 4-5. apríl síðastliðinn Íslandsmeistari í Minnibolta 11 ára drengja en þá fór lokaumferð Íslandsmótsins fram í Grindavík. MB 11 ára árgangurinn virðist vera mjög sterkur en 2 af þeim liðum sem tóku þátt í lokamótinu hófu ekki leik í A-riðli í upphafi árs. KR sigraði fyrstu þrjá leiki sína á mótinu og spiluð úrslitaleik við Grindavík sem þeir unnu með 11 stigum eftir jafnan leik framan af. Mynd: Íslandsmeistarar 2009, minnibolti 11 ára KR. Efri röð frá vinstri, Þorri, Jóhannes, Bjarni, Alex, Egill, Ragnar og Kristinn þjálfari. Neðri röð frá vinstri, Jóhann, Eyjólfur, Arnór, Þórir, Albert og Bergþór.