7 apr. 2009Fræðslunefnd KKÍ hefur lokið fræðsluáætlun KKÍ sem kynnt verður innan skamms. Liður í innleiðingu áætlunarinnar er að meta alla virka körfuknattleiksþjálfara inn í stigin svo meta megi fræðsluþörf KKÍ næstu misserin. Við viljum því biðja alla þjálfara að senda starfsferilskrá inn til KKÍ eigi síðar en þriðjudaginn 7. apríl sem er í dag. Gæta þarf þess að í starfsferilskránni komi fram öll reynsla og menntun sem nýst gæti við þjálfun, s.s. þjálfun í öðrum íþróttum, námskeið sem sótt hafa verið innanlands og erlendis, nám á háskólastigi í uppeldis-, íþrótta- og sálfræði, dómaranámskeið o.m.fl. Vakin er athygli á því að listinn er langt frá því að vera tæmandi og því er betra að fram komi meiri en minni upplýsingar. Starfsferilsskrá sendist á kki@kki.is Hægt er að sjá [v+]http://www.kki.is/namskeid.asp[v-]samantekt[slod-] um ýmis námskeið sem hafa verið haldin á Íslandi undanfarin ár.