7 apr. 2009ÍA og ÍG hafa tryggt sér sæti í úrslitaleiknum í 2. deild karla í ár. Þar með hafa þau einnig tryggt sér sæti í 1. deild karla að ári þar sem þau taka sæti Laugdæla og Hattar. ÍA sigraði Brokey í Kennaraháskólanum 70:78. ÍG tók á móti Mostra í Grindavík og höfðu heimamenn sigur 96:85. Leikur ÍA og ÍG eiga eftir að leika úrslitaleikinn um sigur í 2. deild en það verður tilkynnt fljótlega hvenær hann fer fram.