6 apr. 2009Staðan í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn er hnífjöfn, en Grindavík jafnaði í kvöld metin með sigri á heimavelli [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0xNSZvX2xlYWc9MiZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01NTQ= [v-]100:88[slod-]. Leikurinn í kvöld var bráðfjörugur og skemmtilegur og frábær tilþrif sáust hjá báðum liðum. Umgjörðin var frábær, skemmtiatriði fyrir leik, glæsileg kynning í upphafi og húsið var troðfullt af um 1000 áhorfendum beggja liða. Næsti leikur í einvíginu er á fimmtudaginn kemur kl 19.15 í DHL-höllinni.