
4 apr. 2009KR sigraði nú áðan fyrsta leikinn í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í DHL-höllinni. Vel var mætt og var leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport. KR hafði undirtökin mest allan leikinn og náði meðal annars 20 stiga forskoti í upphafi 4. leikhluta. Grindvíkingar söxuðu á forskotið jafnt og þétt í restina en leikurinn endaði með fjögurra stiga sigri KR [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0xNSZvX2xlYWc9MiZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01NTM= [v-]88:84[slod-]. Næsti leikur fer fram á mánudagskvöldið í Grindavík kl 19.15


