1 apr. 2009Um síðstu helgi fór fram úrslita-fjölliðamót í Minnibolta 11 ára stúlkna í Toyota-höllinni í Keflavík. Auk heimamanna í Keflavík tóku þátt Grindavík, Njarðvík, Haukar og KR. Keflavík og KR unnu alla sína leiki og mættust í úrslitaleik á sunnudeginum. Það fór svo að Keflavík vann leikinn nokkuð örugglega og kláruð veturinn án þess að tapa leik. KKÍ óskar stelpunum í Minnibolta 11 ára í Keflavík til hamingju með titilinn.