1 apr. 2009Það voru Haukastúlkur sem tryggðu sér sigur í Iceland Express-deildinni í ár, og þar með Íslandsmeistartitilinn, með sigri á KR í oddaleik um titilinn að Ásvöllum í kvöld. Leikurinn var frábær skemmtun eins og allir leikirnir í úrslitaseríunni hafa verið. Það fór svo að Haukar reyndust sterkari lokaleikhlutanum og unnu [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0yMSZvX2xlYWc9MiZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01NTI=[v-]69:64[slod-]. Slavica Dimovska var kjörin MVP í úrslitaseríunni en hún var með 27 stig í kvöld og leiddi Haukaliðið af miklu öryggi. KKÍ óskar Haukum til hamingju og þakkar báðum liðum fyrir frábæra úrslitaseríu í ár.