1 apr. 2009Dómstóll KKÍ hefur kveðið upp dóm í máli KKÍ gegn Kkd. Fjölni. Kæran kom til vegna þess að þjálfari Fjölnis í minnibolta 10 ára kvenna tefldi fram ólöglegu liði á fjölliðamóti í flokknum. Dómsorð eru eftirfarandi: Fjölnir telst hafa tapað leikjum sínum gegn Keflavík, Njarðvík og KR sem fram fóru í fjölliðamóti MB 10 ára stúlkna 22. febrúar 2009, öllum með stigatölunni 0-20. Eva María Grétarsdóttir er dæmd í fjögurra leikja bann sem þjálfari MB 10 ára stúlkna. [v+]http://www.kki.is/skjol/domur_fjolnir_mb10ara.doc[v-]Allur dómurinn[slod-].