31 mar. 2009KR varð Íslandsmeistari í Minnibolta 10 ára drengja um helgina. Strákarnir í KR unnu alla sína leiki á mótinu nokkuð örugglega, en leikið var í Njarðvík. Benedikt Guðmundsson er þjálfari liðsins. UMFN hafnaði í öðru sæti á mótinu en einnig tóku þátt Keflavík, Stjarnan og Haukar. KKÍ óskar MB 10 hjá KR til hamingju með titilinn.