31 mar. 2009Firma- og hópakeppni Hauka verður að þessu sinni haldin laugardaginn 11. apríl 2009. Leikið verður á Ásvöllum, á tveim löglegum körfuboltavöllum samtímis, fyrir utan úrslitaleikinn sem verður leikinn á aðalvellinum. Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 X 12 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í leiknum. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum. Tveir dómarar (leikmenn meistaflokks Hauka) verða á hverjum leik og lögleg leikklukka á báðum völlum. Mótið er eingöngu ætlað leikmönnum 20 ára og eldri og ekki heimilt að hafa leikmenn úr 1. deild eða Iceland Expressdeild í liðunum. Þátttökugjald er kr. 20.000.- fyrir hvert lið, Innifalið í gjaldinu eru veglegar veitingar í boði fyrir keppnisliðin. Sigurvegarar fá bikar í verðlaun og gullverðlaunapeninga. Þátttökutilkynningar berist sem fyrst til undirritaðra. Ívar Ásgrímsson ivar@fasteignastofan.is Sími: 8612928 Pétur Ingvarsson peturi@hotmail.com Sími: 8977979