29 mar. 2009KR stúlkur tryggðu sér í kvöld oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Haukum í DHL-höllinni, en fyrir leikinn var staðan 2-1 fyrir Haukum. Það lið sem fyrr sigrar 3 leiki verður Íslandsmeistari. KR sigraði í kvöld með 9 stigum, [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0yMSZvX2xlYWc9MSZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01NDg= [v-]65:56[slod-]. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann, en KR hafði 18 stiga forskot fyrir 4. leikhluta. Haukastúlkur minnkuðu muninn mest í 4 stig en nær komust þær ekki í kvöld og því þarf oddaleik til að skera úr um það hvort liðið verður Íslandsmeistari. Oddaleikurinn verður á miðvikudaginn á Ásvöllum og hefst kl 19.15.