26 mar. 2009Haukar eru komnir í 2-1 forystu í einvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna með sigri á KR í framlengdum leik í kvöld. Leikurinn var jafn allan tíman, en Haukar höfðu þó yfirhöndina og leiddu með nokkrum stigum framanaf. Haukar skoruðu þrist þegar 2 sekúndur voru eftir en KR náði að jafna með 3 vítum og því varð að framlengja. Þar reyndust Haukastúlkur sterkari og sigruðu 74:65 Næsti leikur liðanna fer fram á sunnudaginn kemur í DHL-höllinni í Vesturbænum. Leikurinn hefst kl 19.15 Tölfræðina úr leiknum er hægt að sjá [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0yMSZvX2xlYWc9MSZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01Mzk= [v-]hérna[slod-].