24 mar. 2009Aganefnd KKÍ tók fyrir þrjú mál á fundi sínum. Ragna Margrét Brynjarsdóttir, leikmaður mfl. kvk. hjá Haukum, fær áminningu en hún fékk tvær óíþróttamannslegar villur í leik Hauka og KR í úrslitum Iceland Express-deildar kvenna. Stefán Orri Stefánsson, leikmaður Ármanns-B í 2. deild karla, er úrskurðaður í eins leiks bann en honum var vísað af velli í leik 2. deildar. Bannið tekur gildi á hádegi á fimmtudag. Aganefnd tók að nýju fyrir mál Ómars Sævarssonar, leikmanns ÍR, eftir að nýjar upplýsingar bárust og fær hann áminningu en hann fékk tvær tæknivillur í leik ÍR og UMFG í 8-liða úrslitum Iceland Express-deildarinnar. Er eins leiks bannið hans því afturkallað og breytt í áminningu. [v+]http://www.kki.is/aganefndarmal.asp[v-]Úrskurðir aganefndar[slod-].