24 mar. 2009Körfuknattleiksdeild Vals ætlar að standa fyrir körfuboltabúðum 6.-8. apríl næstkomandi frá 9:30-16 fyrir stelpur og stráka fædd 1993-1998. Þjálfarar verða Robert Hodgson, Robert Newson og Birgir Mikaelsson. Þátttakendur þurfa að taka með sér nesti. Skráning fer fram á netfanginu [p+]biggimikk@gmail.com[p-] biggimikk@gmail.com[slod-]. Verðið er 5.000 kr. og greiðist eigi síðar en við upphaf námskeiðsins. Dagskráin verður í grófum dráttum á þessa leið: 09:30-09:50 · Leikmenn gera sig klára 09:50-10:20 · Upphitun 10:20-11:35 · Stöðvar – grunnatriði 11:35-12:15 · Tækni/taktík 12:15-13:15 · Hádegismatur (videó) 13:15-13:45 · Upphitun og skot 13:30-14:30 · Tækni/taktík 14:30-15:45 · Spilað 15:45-16:00 · Teygjur