24 mar. 2009Fjölnir tryggði sér áðan sigur í oddaleik gegn Haukum á Ásvöllum með [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0xOCZvX2xlYWc9MyZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01NDY= [v-]71:75[slod-] sigri. Leikurinn var jafn allan tímann en í upphafi 4. leikhluta skoraði Fjölnir 10-0 í röð sem lagði grunninn að sigrinum. Þeir munu því mæta Val í úrslitum 1.deildar karla í ár um laust sæti í Iceland Express-deildinni að ári. Valur lagði KFÍ einnig í oddaleik í Vodafone-höllinni í kvöld [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0xOCZvX2xlYWc9MyZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01NDc= [v-]102:84[slod-]. KR lagði Keflavík á útivelli [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0xNSZvX2xlYWc9MiZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01NDI= [v-]75:88[slod-] og leiðir því rimmuna 2-0. Með sigri á heimavelli, á föstudaginn kemur kl 19.15, geta þeir tryggt sér sæti í úrslitunum.