24 mar. 2009Þau merku tímamót verða í kvöld þegar Keflavík og KR mætast öðru sinni í undanúrslitum Iceland Express deildar karla að alþjóðlegu dómararnir Sigmundur Már Herbertsson og Björgvin Rúnarsson eru báðir að dæma sinn 1000. leik á vegum KKÍ.
Sigmundur Már Herbertsson, fæddur 1968. Hóf að dæma snemma árs 1995, nánar tiltekið 3. janúar þegar hann dæmdi leik Keflavíkur og ÍA í unglingaflokki karla, meðdómari var Víglundur Sverrisson. Fyrsti leikur í Úrvalsdeild var 2. nóvember 1995 þegar Keflavík tók á móti Val. Leikinn dæmdi Sigmundur með Kristjáni Möller og í leikmannahóp Keflavíkur var Sigurður Ingimundarson sem þjálfar Keflavík í 1000. leik Sigmundar. Þá voru Gunnar Einarsson og Elentínus Margeirsson báðir í hóp hjá Keflavík sem vann leikinn 98-61. Sigmundur hefur dæmt 310 leiki í Úrvalsdeild. Hann tók alþjóðlegt dómarapróf í Amsterdam árið 2003 og hefur dæmt fjölda alþjóðlegra leikja.
Björgvin Rúnarsson, fæddur 1971. Hóf að dæma vorið 1992, fyrsti leikurinn var í 1. deild kvenna þann 29. mars og var það leikur KR og Grindavíkur, meðdómari var Brynjar Þór Þorsteinsson. Fyrsti leikur í Úrvalsdeild var 6. febrúar 1994 í Grindavík þegar Grindavík tók á móti ÍA og sigraði 115-80. Meðdómari var hinn gamalreyndi Jón Otti Ólafsson sem hafði dæmt sinn 1000. leik rúmu ári áður. Björgvin hefur dæmt 319 leiki í Úrvalsdeild. Hann tók alþjóðlegt dómarapróf í Riga í Lettlandi árið 2005 og hefur dæmt fjölda alþjóðlegra leikja. Áður hafa þrír dómarar náð 1000 leikja markinu en það eru Jón Otti Ólafsson, Rögnvaldur Hreiðarsson og Kristinn Óskarsson. Á [v+]http://www.karfan.is/index.php?option=com_content&task=view&id=8824&Itemid=1[v-]karfan.is[slod-] má lesa meira um þá kappa sem og viðtöl við þá vegna þessara tímamóta.