24 mar. 2009Úrslitamótið í 7. flokki karla fór fram um síðustu helgi í DHL-höllinni. Fimm lið kepptu til úrslita en það voru KR, Haukar, Stjarnan, UMFG og Ármann. Eftir hörkukeppni alla helgina varð lið Stjörnunnar Íslandsmeistari en þeir unnu alla leiki sína. Er þetta annar Íslandsmeistaratitill Stjörnunnar frá upphafi. KKÍ óskar strákunum í Stjörnunni til hamingju. Lokaröð liða var eftirfarandi: 1. Stjarnan 2. Haukar 3. KR 4. UMFG 5. Ármann