23 mar. 2009Helena og félagar eru úr leik í bandaríska háskólaboltanum eftir tap gegn South Dakota State í gærkvöldi. South Dakota komst í metabækur í háskólaboltanum með því að skora 16 þriggja stiga körfur og var nýtingin frábær eða 51% South Dakota State vann öruggan sigur [v+]http://sports.espn.go.com/ncw/boxscore?gameId=294000026[v-]90:55[slod-] Helena Sverrisdóttir var stigahæst, tók flest fráköst og gaf flestar stoðsendingar síns liðs. Helena er á sínu öðru ári af fjórum og er þátttaka liðsins í úrslitakeppninni mikil reynsla fyrir hana og verður gaman að fylgjast með liðinu á næstu árum. Hægt er að lesa um leikinn [v+]http://sports.espn.go.com/ncw/recap?gameId=294000026[v-]hér[slod-] og einnig er hægt að sjá Highlights video úr leiknum [v+]http://all-access.cbssports.com/player.html?code=ncaa&media=110753 [v-]hérna[slod-].