21 mar. 2009Í dag klukkan 16:00 hefst úrslitaeinvígi deildarmeistara Hauka og Subwaybikarmeistara KR um það hvort liðið verður Íslandsmeistari 2009. Fyrsti leikur liðanna fer fram á Ásvöllum og hefst klukkan 16:00. Leikir í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna hafa verið skemmtilegir og mikil spenna í gangi. Það má búast við spennandi leikjum hjá þessum frábæru liðum. Borgarskot Iceland Express verður á sínum stað þannig að áhorfendu gefst kostur á því að skjóta sér til Evrópu.