21 mar. 2009KR stúlkur gerðu góða ferð í dag á Ásvelli og sóttu sigur í fyrsta leiknum um Íslandsmeistaratitilinn. KR sigraði með 9 stiga mun, 52:61. Eftir 1. leikhluta var staðan aðeins 8-8. Í næsta leikhluta skoraði KR 18 stig á móti 10 frá Haukum og leiddu því 18-25 í hálfleik. KR vann einnig 3. leikhluta 10-18 og voru því með þægilegt forskot fyrir síðasta hlutann, sem Haukastúlkur unnu 24-18, en það kom ekki að sök og því KR sigur staðreynd. Næsti leikur liðanna verður á heimavelli KR á mánudaginn kemur, 23. mars, kl. 19.15 í DHL-höllinni. Nánari tölfræði má sjá á [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0yMSZvX2xlYWc9MiZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01Mzc= [v-]kki.is/live[slod-].