20 mar. 2009Úrslitakeppni 1.deildar karla hófst í kvöld. Haukar og Fjölnir mættust á Ásvöllum en það lið sem vinnur tvo leiki leikur til úrslita um eitt laust sæti í Iceland Express deildinni á næstu leiktíð. Fjölnir hafði betur 70:81 og hefur þar með tekið forystuna í einvíginu. Næsti leikur liðanna fer fram í Grafarvogi á sunnudagskvöld klukkan 19:15