17 mar. 2009Næstkomandi föstudag 20. mars hefst úrslitakeppni 1. deildar karla. Þá mætast Valur og KFÍ annars vegar og Haukar og Fjölnir hinsvegar. Liðin keppast að því að fylgja Hamri upp í Iceland Express-deildina. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer áfram í úrslit. Í úrslitunum þarf einnig að vinna tvo leiki. Dagskrá: Valur · KFÍ 1. leikur – 20. mars kl. 20:00 - Vodafone-höllin 2. leikur – 22. mars kl. 19:15 – Ísafjörður 3. leikur – 24. mars kl. 20.00 – Vodafone-höllin · (Oddaleikur ef þarf) Haukar · Fjölnir 1. leikur – 20. mars kl. 19:15 - Ásvelir 2. leikur – 22. mars kl. 19:15 – Íþróttamiðstöðin Grafarvogi 3. leikur – 24. mars kl. 19:15 – Ásvellir · (Oddaleikur ef þarf) Stefnt er að því að lokaúrslitin hefjist svo föstudaginn 27. mars.