17 mar. 2009Aganefnd KKÍ tók fyrir tvö mál á fundi sínum í dag. Ómar Sævarsson, leikmaður ÍR, fær einn leik í bann en honum var vikið af velli í gærkvöldi í leik ÍR og UMFG í úrslitakeppni Iceland Express-deild karla. Bannið tekur gildi á hádegi á morgun miðvikudag, í úrslitakeppninni þá tekur aganefnd fyrir allar kærur um leið og þær berast. Ef leikmaður er dæmdur þá tekur bannið gildi á hádegi daginn eftir. Högni Þorkelsson, leikmaður ÍR-b í 2. deild karla, er dæmdur í eins leiks bann vegna brottreksturs sem hann fékk í leik gegn KR-b. Bannið tekur gildi á hádegi á fimmtudag. [v+]http://www.kki.is/aganefndarmal.asp[v-]Úrskurðir aganefndar[slod-]