16 mar. 2009Leikur Stjörnunnar og Snæfells í kvöld í 8-liða úrslitum karla verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Leikurinn hefst klukkan 19:15 Þetta er sögulegur leikur hjá körfuknattleiksliði Stjörnunnar en þetta er í fyrsta sinn sem liðið leikur í úrslitakeppni og þessi leikur þar með sá fyrsti á heimavelli. Einnig mun þetta verða í fyrsta sinn sem körfuboltaleik er sjónvarpað beint frá íþróttahúsinu í Ásgarði í Garðabæ en leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport Í kvöld verður eitt og annað í gangi á leikjum kvöldsins. Borgarskot Iceland Express sem hefur slegið í gegn undanfarin ár verður á sínum stað en 4 heppnir áhorfendur frá tækifæri á að skjóta sig til útlanda. Borgarskotið er á öllum leikjum úrslitakepna karla og kvenna. Á leik Stjörnunnar og Snæfells verður einnig " Iceland Express Hringlið " Hringlið fer þannig fram að einum áhorfanda gefst kostur á að reyna sig við að er snúa sér í 10 hringi við miðlínu vallarins og reyna svo að skora öðru megin. Viðkomandi hefur 24 sekúndur til að framkvæma þrautina. Hringlið er í völdum leikjum í úrslitakeppninni og var fyrst prófað í úrslitakeppnunum í fyrra og er óhætt að segja að það hafi gersamlega slegið í gegn. Þeir sem ná að hitta í Borgarskotinu eða Hringlinu fá ferð fyrir 2 með Iceland Express.