16 mar. 2009Um helgina fóru fram úrslit í 8. flokki kvenna. Keppt var í Toyota-höllinni á föstudag og í Akademíunni í Reykjanesbæ á laugardag. Fimm lið kepptu til úrslita en það voru Keflavík, Grindavík, Breiðablik, Njarðvík og ÍR. Á laugardag mættust Grindavík og Keflavík í hreinum úrslitaleik og það voru Keflavíkurstúlkur sem reyndust sterkari og unnu leikinn og eru því Íslandsmeistarar 2009 í 8. flokki kvenna. KKÍ óskar stelpunum til hamingju með titilinn. Lokastaða 1. Keflavík 2. Grindavík 3. Breiðablik 4. Njarðvík 5. ÍR