15 mar. 2009Úrslitakeppnir karla og kvenna eru í fullum gangi og í kvöld fóru fram tveir leikir í 8-liða úrslitum hjá körlunum og einn leikur í undanúrslitum kvenna. Hjá konunum voru það Haukar sem unnu Hamar á Ásvöllum [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0yMSZvX2xlYWc9MSZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01Mjk=[v-]59:55[slod-] og hafa Haukar náð forystu á ný 2-1. Næsti leikur liðanna er á þriðjudagskvöld í Hveragerði. Í Toyotahöllinni mættust Keflavík og Njarðvík í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum. Keflavík hafði betur [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0xNSZvX2xlYWc9MiZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01MjA=[v-]96:88[slod-] Næsti leikur liðanna verður í Njarðvík á þriðjudagskvöld. Í DHL höllinni sigraði KR lið Breiðabliks [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0xNSZvX2xlYWc9MiZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD01MTc=[v-]123:75[slod-] Næsti leikur liðanna verður á þriðjudagskvöld í Smáranum í Kópavogi.