14 mar. 20091.deild karla lauk í gær en þá fór lokaumferðin fram. Hamar vann nágranna sína frá Þorlákshöfn og tryggðu sér þar með sæti sitt í Iceland Express deildinni á næstu leiktíð. Fyrir leikina í gær var enn tölfræðilegur möguleiki á því að Haukar enduðu sem deildarmeistarar. Einnig var mikil barátta á milli annarra liða um góða stöðu og heimavallarrétt í úrslitakeppni 1.deildarinnar sem hefst föstudaginn 20. mars. Hamar vann Þór Þorlákshöfn í Hveragerði [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0xOCZvX2xlYWc9MyZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD0zNDY=[v-]90:86[slod-] Haukar töpuðu á heimavelli gegn Valsmönnum [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0xOCZvX2xlYWc9MyZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD0zNDU=[v-]66:79[slod-] Með þessu sigri tryggðu Valsmenn sér heimavallarréttinn í úrslitakeppninni. KFÍ vann Hött á Egilsstöðum 55:97 og tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppninni. Hrunamenn lögðu Ármann á Flúðum [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0xOCZvX2xlYWc9MyZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD0zNDQ=[v-]108:93[slod-] Fjölnir vann Laugdæli í Grafarvogi [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0xOCZvX2xlYWc9MyZmdXNlYWN0aW9uPWdhbWVzLm1haW4mZ19pZD0zNDM=[v-]116:85[slod-] Valur, Haukar, Fjölnir og KFÍ hefja leik í úrslitakeppni föstudaginn 20.mars. Það er ljóst að um spennandi keppni verður að ræða enda öll þessi lið vel mönnuð og eiga góða heimavelli. Einnig eiga þessi leið það sameiginlegt að hafa verið áður á meðal þeirra bestu og því vita þau til hvers er að vinna. Þau lið sem mætast í undanúrslitum eru: Valur - KFÍ Haukar - Fjölnir Keppt er um eitt laust sæti en Hamarsmenn fara beint upp í Iceland Express deildina eins og áður hefur komið fram.