9 mar. 2009Nú kl 14.00 voru veitt verðlaun á Nordica Hótel fyrir bestu frammistöðu leikmanna í seinni umferðinni í deildinni. Slavica Dimovska var valin besti leikmaðurinn en veitt voru verðlaun fyrir 5 manna úrvalslið, besta þjálfarann og mesta dugnaðarforkinn. Úrvalslið seinni umferðar: Slavica Dimovska · Haukar Pálína Gunnlaugsdóttir · Keflavík Birna Valgarðsdótir · Keflavík Sigrún Ámundadóttir · KR Signý Hermannsdóttir · Valur Besti þjálfarinn: Yngvi Gunnlaugsson · Haukar Dugnaðarforkurinn: Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir · KR
Guðrún Gróa, Pálína, Slavica, Sigrún og Signý. Birna var fjarverandi við myndatökuna.