5 mar. 2009Aganefnd kom saman í síðustu viku og tók fyrir þrjú mál. Helgi Guðbjartsson, Reyni Sandgerði, fékk einn leik í bann vegna brottrekstur í leik gegn Brokey í 2. deild karla. Sveinn Hans Gíslason, aðstoðarþjálfari Reynis, fékk einnig leik í bann vegna brottreksturs í leik gegn Brokey í 2. deild karla. Keflavík fékk áminningu vegna hegðunar stuðningsmanna að loknum leik Keflavíkur og Grindavíkur í Iceland Express-deild karla 20. febrúar og hegðun starfsmanns á ritaraborði í umræddum leik. Bönnin taka gildi á hádegi í dag. [v+]http://www.kki.is/aganefndarmal.asp?page=1[v-]Úrskurðir aganefndar[slod-]