4 mar. 2009U15 heldur út til Danmerkur dagana 5. til 7. júní næstkomandi en þá fer fram alþjóðlegt mót í Farum Arena sem er rétt utan Kaupmannahafnar. Mótið sem ber nafnið Copenhagen Invitational 2009, er nú haldið í annað sinn en U15 (drengir fæddir 1993 og síðar) tóku þátt í mótinu í fyrra en nú eru það drengir fæddir 1994 og síðar sem fara. 26 manna hópur U15 æfði um jólin og hafa 14 leikmenn verið valdir til þess að fara í þessa ferð en hópurinn heldur utan 4. júní. Þess má geta að meðal leikmanna liðsins eru 4 strákar sem eru í U16 hópnum sem fer á NM 20. maí. Eftirtaldir leikmenn skipa íslenska liðið: Adam Karl Helgason · miðherji KR Darri Freyr Atlason · framherji KR Elvar Már Friðriksson · bakvörður Njarðvík Emil Karel Einarsson · framherji Þór Þ Hafsteinn Davíðsson · miðherji Hamar Jens Óskarsson framherji · Grindavík Maciej Stanislav Baginski · framherji Njarðvík Martin Hermannsson · bakvörður KR Matthías Orri Sigurðarson · bakvörður KR Oddur Rúnar Kristjánsson · bakvörður KR Sigurður Dagur Sturluson · bakvörður Njarðvík Stefán Karel Torfason · framherji Þór Ak Valur Orri Valsson · bakvörður Njarðvík Þorgrímur Kári Emilsson · miðherji ÍR Þjálfari: Einar Árni Jóhannsson